Innlent

Harður árekstur í Kömbunum

Harður árekstur varð í Kömbunum rétt fyrir klukkan fjögur. Jepplingur reyndi að fara framúr öðrum bíl þar sem tvær akreinar liggja í sömu átt. Að sögn lögreglunnar rann jepplingurinn til í krapa og rakst á bíl sem hann var að fara fram úr. Við það snerist hann í hálfhring og fór yfir á öfugan vegarhelming. Bifreið sem kom úr gagnstæðri átt rakst þá aftan á jepplinginn. Að sögn lögreglunnar voru tveir fluttir á slysadeild, en meiðsl þeirra munu ekki vera lífshættuleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×