Krabbameinsfélagið fær 42 milljónir frá SPRON sjóðnum 27. febrúar 2008 14:39 Guðrún Agnarsdóttir, Kristján Sigurðsson, Guðmundur Hauksson og Jóna Ann, við afhendinguna í dag.
SPRON-sjóðurinn ses. hefur veitt Krabbameinsfélagi Íslands 42 milljóna króna styrk til kaupa á úrlestrarstöðvum sem röntgenlæknar nota til að lesa úr stafrænum brjóstamyndum. Jóna Ann Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SPRON-sjóðsins ses., afhenti Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands, styrktarféð við athöfn í dag. „Úrlestrarstöðvarnar eru liður í umfangsmikilli tækjavæðingu á leitarsviði Krabbameinsfélagsins þar sem stafræn tækni er notuð við leit að brjóstakabbameini. Um er að ræða viðamikið verkefni með margvíslegum vélbúnaði og hugbúnaði fyrir tæplega 500 milljónir króna. Þegar hefur fengist fjárstuðningur sem nemur um tveimur þriðju þessa stofnkostnaðar," segir í tilkynningu frá sjóðnum. Jóna Ann Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SPRON-sjóðsins ses., afhenti Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands, styrktarféð við athöfn í dag. „Það er mjög ánægjulegt að geta styrkt hið mikilvæga forvarnastarf sem Krabbameinsfélagið innir af hendi í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Félagið hefur tryggt konum aðgang að bestu mögulegri tækni við krabbameinsleit á undanförnum árum og er þessi styrkur liður í því að tryggja að svo megi verða áfram," sagði Jóna Ann við afhendingu fjárins. Stafræn tækni sem notuð verður á leitarsviði Krabbameinsfélagsins auðveldar leit í þéttum brjóstvef, auk þess að auðvelda úrlestur gagna. Þá fylgja stafrænni tækni minni geislaskammtar og minni mengun þar sem leitarferlið er filmulaust. Hinar stafrænu vinnustöðvar tryggja auk þess að textar úr gagnagrunni og röntgenmyndir eru samtengd þannig að greining skráist á rétt nafn og kennitölu. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, segir að leitarstarf Krabbameinsfélagsins hafi stuðlað að því að lifun kvenna á Íslandi eftir greiningu með brjóstakrabbamein væri með því besta sem þekkist. „Leitarstöðin tekur nú upp stafræna tækni við leit að þessum sjúkdómi en hún er mun áreiðanlegri en áður hefur þekkst og bætir vinnuaðstöðu röntgenlækna. Krabbameinsfélag Íslands metur mikils þessa höfðinglegu gjöf sem gerir félaginu kleift að bjóða konum á Íslandi áfram bestu þjónustu sem völ er á."
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Birtu ekki baulið Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira