Vilhjálmur er ekki spilltur heldur bara "jolly good" 25. febrúar 2008 11:12 ,,
Af mínum kynnum af Vilhjálmi, þá hef ég ekkert nema allt gott um hann að segja" sagði Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, þegar hann var spurður að þvi hvort Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson væri spilltur. Sömu spurningu svaraði Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, ,,Nei nei, hann er bara svona jolly good. Það er engin spilling í þessu hjá honum". Þeir Jón og Ellert, báðir fyrrverandi formenn SUS, voru gestir í morgunþætti Bylgjunnar, Í bítið, í morgun og ræddu þar meðal annars stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni. Ellert telur að Vilhjálmur hafi tekið rétta ákvörðun og segir ekki rétt að gera hann einan sökudólg í þessu máli. Allur borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins beri ábyrgðina, Vilhjálmur hafi gerst sekur um mistök sem hann hafi beðist afsökunar á. Þá benti Jón á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi venjulega varið mjög hart oddvita flokksins í borgarstjórn. Sú hafi ekki verið raunin núna og telur Jón þetta gjörbreytingu á flokknum þar sem hvorki forystumenn flokksins sé stofnanir hans hafi lagt í nokkra vörn fyrir Vilhjálm. Þvert á móti hafi verið vegið að honum innan flokksins í staðinn fyrir að kryfja málin til mergjar segir Jón sem telur óeðlilega hafi verið staðið að málum. Jón furðar sig jafnframt á því hversu lítið ábyrgð stjórnenda REI og OR hefur verið í umræðunni og telur að þeir sem sátu í stjórn Orkuveitunnar og helstu forystumenn hennar, þegar þessar ákvarðanir voru teknar, beri allir ábyrgð. Báðir lýsa þeir þó áhyggjum sínum vegna óvissunar sem nú ríkir um það hver komi til með að leiða flokkinn. Sú óvissa geti leitt til þess að menn verði upppteknir af því hver eigi að taka við í stað þess að menn einbeiti sér að málefnum borgarinnar. Sú hætta sé fyrir hendi að flokkurinn verði sundurtættur, að minnsta kosti næstu mánuðina. Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni: http://www.bylgjan.is/?PageID=1857
Mest lesið Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Innlent Fleiri fréttir Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Sjá meira