Laun hækka um 18 þúsund krónur strax 14. febrúar 2008 18:38
Laun hækka almennt um átján þúsund krónur við undirskrift og um 38 þúsund krónur á næstu tveimur árum, samkvæmt launaákvæðum sem Alþýðusambandsfélög og Samtök atvinnulífsins hafa orðið ásátt um. Þá fjölgar orlofsdögum almennt um tvo. Búist er við að skrifað verði undir nýja kjarasamninga um helgina.Forystumenn Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins sættust á þessum fundi í gærkvöldi á útlínur launaliðs nýrra kjarasamninga. Megináherslan er á hækkun lægstu launa og er óhætt að segja að þau hækki verulega, eða um 16 prósent strax og alls um 32 prósent þegar allar hækkanir verða komnar fram eftir tvö ár en gert er ráð fyrir að samningarnir gildi fram til 1. desember 2010.Almennir launataxtar hækka við undirskrift um 18 þúsund krónur, á næsta ári um 13.500 krónur og um 6.500 krónur árið 2010. Iðnaðarmenn fá meir krónutöluhækkun, eða 21 þúsund strax, en síðan 17.500 og loks 10.500 krónur. Árið 2010 kemur svo almenn launahækkun upp á 2,5 prósent, auk ofangreindra taxtahækkana."Baksýnisspegillinn" svokallaði á að tryggja þeim sem ekki nutu launskriðs á síðustu þrettán mánuðum búbót. Þetta ákvæði virkar þannig að ef menn hafa ekki fengið 5,5 prósenta kauphækkun á tímabilinu frá 2. janúar 2007 til undirritunar samninga fá menn það sem á vantar.Samskonar launaþróunartrygging verður reiknuð 2009 og á að tryggja öllum minnst 3,5% vegna ársins 2008. Þá er gert ráð fyrir fjölgun orlofsdaga um tvo þannig að þeir verði almennt þrjátíu. Samningar eru þó ekki í höfn. Fjöldi sérmála er ófrágenginn og menn vilja sjá framlag stjórnvalda áður en skrifað verður undir.Seðlabankinn olli samtökum atvinnulífsins verulegum vonbrigðum með því að lækka ekki vexti í morgun. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í samtali við Stöð 2 að ákvörðun Seðlabankans að halda vöxtunum óbreyttum væri veruleg vonbrigði. Það rofaði aldrei neitt til í Seðlabankanum. Vilhjálmur telur Seðlabankann ekki hafa fært nægileg rök fyrir ákvörðun sinni.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Sjá meira