Landhelgisgæslan bjargaði svöngum hrossum ofan af fjallstindi Breki Logason skrifar 5. febrúar 2008 16:01 Þyrla Landhelgisgæslunnar stóð sig vel í leiðangrinum. „
Þetta gekk svo vel að ég átti ekki til orð, þessir menn eru þvílíkir snillingar," segir Viðar Pálsson bóndi í Fljótshlíðinni um frækilegt björgunarafrek Landhelgisgæslunnar í vikunni. Verið var að reka nokkur hross úr sveitinni heim þegar þau þustu í skyndi upp á fjallið Þríhyrning. Hrossin höfðu ekki fengið að éta í nokkurn tíma og höfðu bændur því áhyggjur af hrossunum sem fóru alla leið upp á topp fjallsins. „Við fórum upp á fjórhjólum og snjósleðum," segir Viðar en bændurnir komust ekki upp á topp á fjallinu. Því var haft samband við Lögregluna á Hvolsvelli sem í samvinnu við Landhelgisgæsluna fékk þyrlu til að aðstoða við að ná hrossunum niður. „Það stóð yfir æfingaflug hjá okkur þegar við fengum þessa beiðni frá þremur bændum þarna í sveitinni. Menn höfðu áhyggjur af svelti og veðri og var meiningin að ferja þessar bændur upp á fjall til þess að ná hrossunum niður," segir Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar um björgunarafrekið. Þegar þyrlan kom upp á topp fóru hrossin sjálf niður sem var merkileg sjón að sögn Viðars bónda. „Þessir snillingar ráku þau bara niður og við þurftum ekki að gera neitt." Að sögn Georgs Lárussonar fær Gæslan af og til beiðnir um aðstoð vegna dýra í sjálfheldu, og hafa þeir meðal annars farið í björgunarleiðangra tengda sauðfé. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á sumarbústað í Fljótshlíðinni og þar að auki einn hest að sögn Viðars. Sá hestur var þó ekki í hópnum sem bjarga þurfti af fjallinu en þekkir vafalaust til óþekktarormanna sem stukku upp á Þríhyrning á fastandi maga.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Sjá meira