Ekki hægt að útiloka beitingu kynjakvóta 31. janúar 2008 13:04 Björgvin G. Sigurðsson. M;YND/Pjetur
Ekki er hægt að útiloka beitingu lögbundins kynjakvóta hjá íslenskum fyrirtækjum, takist ekki að leiðrétta hlut kvenna í stjórnum og stjórnunarstöðum. Þetta kom fram í máli viðskiptaráðherra Björgvins G. Sigurðssonar á fundi sem hópur kvenna stóð fyrir í dag. Fundurinn var haldinn í tengslum við auglýsingar sem birtust í blöðum í morgun þar sem rúmlega hundrað konur lýstu sig reiðubúnar til þess að taka sæti í stjórnum íslenskra fyrirtækja. Björgvin fór yfir málin og nefndi nokkur úrræði sem að hans mati er hægt að beita til þess að auka hlut kvenna í stjórnum. Á meðal þess sem hann nefndi var að auka virka umræðu um málefnið, verðlauna fyrirtæki sem náð hafa árangri á þessu sviði og höfða til neytenda með því að gera þá meðvitaða um það hvaða fyrirtæki gæti að kynjajafnrétti. „Ég mun beita mér fyrir því að framangreindum úrræðum verði beitt og að umræðu um kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja verði haldið vakandi. Það er hins vegar æskilegast að fyrirtæki sýni frumkvæði í að jafna kynjahlutföll í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda, en afskipti löggjafans eru þó ekki útilokuð sé ljóst að ekkert annað virki," sagði Björgvin. „Þá mundi ég telja að lögfesting á kynjakvóta væri ekki fyrsta skrefið heldur væri fyrst hægt að lögfesta upplýsingaskyldu fyrirtækja um nöfn, stöðuheiti og ábyrgðarsvið stjórnarmanna og æðstu stjórnenda fyrirtækja, en slík upplýsingagjöf þekkist víða erlendis. Slíkt stuðlar bæði að því að fyrirtæki verði í auknum mæli meðvituð um skipun í stjórnir og ábyrgðarstöður auk þess sem slíkt auðveldar öflun gagna um kynjahlutföll stjórnar og stjórnenda í fyrirtækjum. Ef ljóst þykir að ekkert annað dugar er ekki hægt að útiloka beitingu lögbundins kynjakvóta," sagði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira