Hörgull á málum á þingi? 29. janúar 2008 15:24 MYND/Pjetur
Deilt var um það á Alþingi hversu framtakssöm ríkisstjórnin hefði verið á þessum vetri og ráðherrar hvattir til að spýta í lófana. Það var Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, sem vakti athygli á því í óundirbúnum fyrirspurnum í dag að af þeim 150-160 þingmálum sem fylgt hefðu stefnuræðu forsætisáðherra í haust væru aðeins um 75 mál komin fram. Benti hún á að menntamálaráðherra hefði aðeins lagt fram 6 mál af 19, heilbrigðisráðherra 4 af 15 og viðskiptaráðherra 9 af 22. Spurði hún Geir H. Haarde hvað liði framlagninu mála á þingi og sagði ráðherra þurfa að spýta í lófana svo öll málin kæmu ekki á síðustu vikum þingsins í vor. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagðist fagna því að Valgerður saknaði góðra mála ríkisstjórnarinnar. Hún ætti hins vegar að vita að listinn sem fylgdi stefnuræðu forsætisráðherra væri ekki bindandi. Sagðist hann líta á fyrirspurn þingmannsins em áskorun um að gera betur og hann myndi taka hana upp á réttum vettvangi. Sagði hann enn fremur að ekki væri hörgull á málum að vinna úr á Alþingi enn sem komið væri og ríkisstjórnin hefði ýmislegt í pokahorninu sem enn ætti eftir að koma fram. Valgerður Sverrisdóttir sagðist ekkert hafa rætt um að mál ríkisstjórnarinnar væru góð. Sagði hún að hörgull væri á málum á Alþingi, að minnsta kosti í nefndum sem hún starfaði. Hún gerði sér þó grein fyrir því að það hafi verið ákaflega gott ástand þegar ríkisstjórnin hafi tekið við völdum á síðasta ári.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira