Gætu átt yfir höfði sér allt að sex til níu ára fangelsisdóm 23. janúar 2008 18:36
Tollverðirnir tveir sem grunaðir um að hafa stolið veski af ungri konu á skemmtistað í Reykjavík um síðustu helgi gætu átt yfir höfði sér sex til níu ára fangelsisdóm. Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum Hressó síðastliðið föstudagskvöld. Mennirnir framvísuðu skilríkjum frá Tollgæslunni og vildu fá að skoða veski konunnar. Sögðust þeir vera sinna fíkniefnaeftirliti. Þegar konan afhenti veskið sitt hljóp annar þeirra á brott með það. Málið var kært til lögreglunnar sem síðan handtók annan manninn. Hinn gaf sig fram síðar. Mennirnir eru báðir starfandi tollverðir hjá Tollgæslunni og hefur hvorugur þeirra hefur verið leystur frá störfum. Annar þeirra neitar þó sök í málinu. Snorri Olsen, tollstjóri í Reykjavík, sagðist í samtali við fréttastofu líta málið alvarlegum augum. Hann segir það afar slæmt ef í ljós kemur um misnotkun á skilríkjum og einkennisklæðnaði embættisins hafi veirð að ræða. Hann telur þó ekki tímabært að víkja mönnunum úr starfi fyrr en rannsókn lögreglu er lokið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er þegar búið að taka skýrslu af báðum mönnum. Fyrir liggur að taka skýrslu af vitnum og konunni sem kærði verknaðinn. Gert er ráð fyrir því að rannsókn málsins ljúki í byrjun næstu viku. Mennirnir gætu átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir þjófnað verði þeir sakfelldir. Auk þess gæti komið til allt að þriggja ára refsihækkunar og sekta þar sem mennirnir misnotuðu opinber skilríki og villtu á sér heimildir.
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Sjá meira