Samið við Katara um samstarf á fjölmörgum sviðum 23. janúar 2008 16:11
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Yousef Kamal, fjármálaráðherra Katars, skrifuðu í dag undir samning um samstarf Íslands og Katar á sviði efnahags-, viðskipta- og tæknimála. Samkvæmt tilkynningu frá iðnaðaráðuneytinu er kveðið á um samvinnu í orkumálum, landbúnaði, sjávarútvegi, samgöngum, fjarskiptum, byggingariðnaði, ferðamálum, vinnumarkaðsmálum og fleiri sviðum. Þá ætla ríkin einnig að hefja samstarf í ferðamálum og skipast á upplýsingum og hefja kynningu á þeim kostum sem fyrir hendi eru í ferðamennsku landanna. Emírinn af Katar, Sheikh Hamad bin Khalifa Al-Thani og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands voru viðstaddir undirritunina í aðsetri emírsins í Doha. Iðnaðarráðherra átti í gær fund með dr. Mohammed Saleh al-Sadah, orku- og iðnaðarmálaráðherra Katar sem jafnframt er varaforsætisráðherra landsins. Á fundinum voru einnig helstu yfirmenn orkumála- og orkufyrirtækja í landinu auk fulltrúa íslenskra orku- og fjármálafyrirtækja. Þar kom fram mikill áhugi á að þróa samstarf um ýmis verkefni á sviði iðnaðar og nýsköpunar, og lýstu Katarmenn vilja sínum til þess að heimsækja Ísland til þess meðal annars að kynna sér jarðhitaverkefni, djúpborun, kolefnisendurvinnslu og íslenska orkuskóla. Össur Skarphéðinsson færði varaforsætisráðherra Katars kveðjur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra og þakkir fyrir stuðning Katars við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Í kvöld taka iðnaðarráðherra og forseti Íslands þátt í umræðufundi um samstarf og hlutverk smáríkja ásamt fjármálaráðherra Katar og fólki úr viðskiptalífi beggja landanna.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Fleiri fréttir Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Sjá meira