Var ekki boðinn borgarstjórastóllinn Heimir Már Pétursson skrifar 23. janúar 2008 11:57
Svandís Svarasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, segir rangt að sjálfstæðismenn hafi boðið henni borgarstjórastóllinn eins og Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, fullyrti í gær. Það hefur ekki farið framhjá neinum að það var sjálfstæðismönnum mikið áfall þegar Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna, sleit meirihlutasamstarfi við þá í byrjun október. Allt síðan þá hafa gengið sögur um tilraunir þeirra til að fá aðra flokka í borgarstjórn til ganga til liðs við sig. Vinstri grænir hafa sérstaklega verið nefndir í því samhengi og hafa leiðarahöfundar Morgunblaðsins beinlínis og ítrekað hvatt til þess samstarfs. Það mátti skilja á Ólafi F. Magnússyni, oddvita F-listans, og verðandi borgarstjóra í hádegisviðtalinu í gær að hann hafi verið einn af mörgum sem sjálfstæðismenn reyndu að draga á tálar. Þar sagði Ólafur að hann vissi ekki betur en sjálfstæðismenn hafi boðið Svandísi borgarstjórastólinn fljótlega eftir að fráfrandi meirihluti tók við völdum í borginni í október. Sjálfstæðismenn leituðu hófanna hjá Svandísi Svandís Svavarsdóttir sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun að fyrst eftir að núverandi meirihluti tók við hafi sjálfstæðismenn leitað hófanna við sig um samstarf. Nú væri að koma á daginn að þeir hafi leitað eftir slíkum samtölum við fleiri án þess árangurs sem þeir væntu. Ef hins vegar Ólafi F. Magnússyni hafi verið sagt að einhvers konar viðræður væru nú í gangi við sig eða aðra borgarfulltrúa VG um samstarf við Sjálfstæðisflokkinn þá væri verið að segja honum ósatt. Svandís segir að það væri forkastanlegt að hennar mati að beita slíkum aðferðum og sjálfstæðismönnum til minnkunar.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Fleiri fréttir Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Sjá meira