Útlit fyrir að F-listi fái engan formann í nefndum og ráðum 22. janúar 2008 16:51
Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, segir að ákvörðun Margrétar Sverrisdóttur og Guðrúnar Ásmundsdóttur um að standa með gamla meirihlutanum í borginni sé merki um að þær séu að bregðast kjósendum sínum. Hann óttast ekki að Margrét slíti meirihlutanum fái hún tækifæri til þess. Úlit er fyrir að F-listi fái ekki formann í neinum nefndum og ráðum vegna ákvæða í sveitarstjórnarlögum. „Mér sýnist þær vera að senda félögum sínum á F-lista skilaboð um að þær kæri sig ekki um að sitja í nefndum og ráðum á vegum flokksins. Þær virðast heldur ekki styðja málefnaskrána sem er þó mjög í anda þess sem F-listinn stóð fyrir í síðustu kosningabaráttu og þar með finnst mér þær bregðast því umboði sem þeir sem kusu okkur í síðustu kosningum veittu okkur." Ólafur segir rétt að í fljótu bragði virðst svo vera sem nýr meirihluti sé veikari en þeir tveir sem starfað hafa á þessu kjörtímabili. „En ég treysti því að lokaniðurstaðan verði þveröfug við það og við munum sitja af okkur það óveður sem nú er í aðsigi. Það verður margt gert til þess að bregða fyrir okkur fæti en ég finn fyrir miklum stuðningi frá félögum mínum á F-lista." Ólafur segir að dagurinn í dag hafi átt að fara í að skipa í nefndir og ráð borgarinnar. „Við höfum verið að reyna að ná í Margréti og Guðrúnu í allan dag því við vildum svo sannarlega fá hana með okkur í þetta starf. En af því verður greinilega ekki." Aðspurður segir Ólafur að útlit sé fyrir að F-listi gegni ekki formennsku í neinni nefnd eða ráði borgarinnar. „Eins og sveitarstjórnarlög eru túlkuð er það þannig að ef fyrsti varaborgarfulltrúi tekur ekki sæti í nefndum er það ekki möguleiki. Ég á eftir að kanna þetta betur," segir Ólafur. Aðspurður hvort áhrif listans séu þá nokkuð meiri í nýjum meirihluta segir Ólafur að þvert á móti eigi F-listinn nú kjörna fulltrúa í öllum nefndum en það hafi ekki verið raunin í fyrra samstarfi. Þegar Margrét Sverrisdóttir hafi verið oddviti hafi verið gefinn afsláttur á þessu og sömuleiðis stefnumálum listans. „Við höfum meiri áhrif innan ráða og nefnda en áður og stefna okkar kemur betur fram," segir Ólafur. Aðspurður hvort hann óttist að Margrét slíti meirihlutanum fái hún færi á því segir Ólafur að hann hafi enga trú á því að það gerist. „Þó að ég verði fjarverandi á einum fundi þá væri það mjög óeðlilegur skæruhernaður af hennar hálfu og ég hef ekki trú á því að hún leggist svo lágt," segir Ólafur F. Magnússon verðandi borgarstjóri og bætir við: „Þessi meirihluti mun halda."
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira