Deilt um aðgerðir og aðgerðaleysi í efnahagsmálum 22. janúar 2008 13:42 MYND/AP
Þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu deildu um það í upphafi þingfundar hversu vel ríkissstjórnin stæði sig í þeim ólgusjó sem nú er í efnahagsmálum í heiminum. Það var Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem kvaddi sér hljóðs um störf þingsins og benti á að margir váboðar væru á lofti. Kallaði hann eftir því að einhver innan stjórnarmeirihlutans gerði sér grein fyrir alvöru málsins. Hann teldi sjálfur ástandið grafalvarlegt og hann hefði áhyggjur af aðgerðaleysi og algjöru kjarkleysi ríkisstjórnarinnar til þess að takast á við vandamálið í efnahagslífinu. Kristján Þór Júlíusson, varaformaður fjárlaganefndar, sagði að flestir þingmenn deildu áhyggjum með Bjarna en menn hefðu mismunandi afstöðu til þess hversu alvarlegt málið væri og hvernig takast ætti á við verkefnin. Íslenskt fjármálakerfi væri sterkt um þessar mundir og atvinnustig hátt og efnahagslífið væri því ágætlega statt til þess að takast á við erfiðleika. Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, benti á að efnahagsskrifstofa fjármálaráðuneytisins hefði í nýrri spá sinni sagt að óvissuþættir í efnahagsmálum væru fleiri en áður. Hins vegar hefði forsætisráðherra afar mikilvægt halda ró sinni. Einkaneysla væri að dragast saman en það væri kraftur og orka í íslensku hagkerfi og hjá íslenskri þjóð. Íslenskt atvinnulíf þyrfti á því að halda að þingmenn stæða við bakið á því en ekki ætti að taka ástandið niður. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, tók einnig til máls og sagði ljóst að aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar væri eitt versta vandamálið í efnhagsmálum. Ríkisstjórnin hefði hafnað aðkomu að kjaraviðræðum í landinu og hann hefði þungar áhyggjur af kjaramun á milli hópa. Bilið hefði breikkað milli þeirra sem mest hefðu og þeirra sem minnst hefðu og óstöðugleikinn vegna þessa kæmi alls staðar í ljós.Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu einnig ríkisstjórnina fyrir aðgerðir í sjávarútvegsmálum þar sem nú hefði komið á daginn að tugir og hundruð hefðu missti starf sitt við fiskvinnslu.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Fleiri fréttir Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Sjá meira