Innlent

Mamma Ólafs F vonar að þetta gangi vel hjá honum

Ólafur F. Magnússon.
Ólafur F. Magnússon. MYND/Daníel R.

Anna G. Stefánsdóttir, móðir Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóraefnis nýja meirihlutans, er að vonum ánægð með árangur son síns í dag. Hún var að fylgjast með myndun nýja meirihlutans þegar Vísir hafði samband við hana í dag. „Ég vona bara að þetta gangi vel hjá honum," segir hún. Anna segist ekki hafa tekið mikinn þátt í pólitík sjálf en hún hafi þó mætt á nokkra fundi. Hún segir þó að umhverfismál og velferðarmál höfði mikið til sín. „Maður er með þannig hjarta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×