Starfsmönnum í landvinnslu HB Granda á Akranesi sagt upp 21. janúar 2008 12:51
HB Grandi stefnir að því að leggja af landvinnslu botnfisks á Akranesi í núverandi mynd og hefja sérvinnslu á léttsöltuðum, lausfrystum þorsk- og ufsaflökum í byrjun júní næstkomandi. Þetta kallar á að öllum stafsmönnum félagsins á Akranesi verður sagt upp 1. febrúar, alls 59 manns, en tuttugu verða endurráðnir. Fram kemur á heimasíðu HB Granda að þetta sé gert til þess að bregðast við skerðingu á þorkkvóta á núverandi fiskveiðiári. Stjórnendur HB Granda kynntu áformin á fundi með trúnaðarmönnum starfsfólks í morgun og síðan á almennum starfsmannafundi sem hófst kl. 11 á Akranesi. Stjórn HB Granda tekur endanlega ákvörðun um breytingar á Akranesi á mánudaginn kemur, 28. janúar. ,,Eftir skerðingu aflamarks í þorski hefur botnfiskvinnslan á Akranesi, sem áður snerist um þorsk, verið starfrækt með því að flytja á Akranes hluta þess ufsa, sem ella hefði verið unninn í Reykjavík. Slíkt fyrirkomulag er ekki hagkvæmt. Hins vegar rekur HB Grandi mikilvæga loðnuvinnslu á Akranesi á loðnuvertíð og er nú til skoðunar að efla þá starfsemi, meðal annars með því að gera mögulegt að heilfrysta þar loðnu. Því er nú stefnt að því að leggja af landvinnslu botnfisks í núverandi mynd og hefja á Akranesi sérvinnslu á léttsöltuðum, lausfrystum þorsk- og ufsaflökum í byrjun júní næstkomandi, með tilheyrandi fjárfestingum í tækjum og búnaði. Gert er ráð fyrir að starfsmenn í loðnuvinnslu sinni þessari sérvinnslu utan loðnuvertíðar," segir á vef HB Granda. Þar segir einnig að þessar ráðstafnir kalli á uppsagnir í landvinnslu á Akranesi. ,,Á launaskrá botnfiskvinnslu HB Granda á Akranesi eru nú 59 starfsmenn í 44 stöðugildum en verða 20 í jafnmörgum stöðugildum í júníbyrjun 2008. Starfsfólki verður sagt upp með fjögurra mánaða uppsagnarfresti, sem rennur því út í lok maímánaðar. Þeir sem lengri uppsagnarfrest hafa fá greitt í samræmi við það, en ekki verður krafist vinnuframlags af þeirra hálfu eftir mánaðamótin maí/júní," segir einnig á vef HB Granda. Þar segir einnig að stjórn félagsins geri sér grein fyrir að þetta séu alvarleg tíðindi fyrir fjölda fólks sem hafi starfað lengi hjá félaginu og það harmi að til þessa þurfi að koma. ,,Rekstrarumhverfi landvinnslunnar er hins vegar þess eðlis að breytingar eru óhjákvæmilegar í starfseminni með tilheyrandi fækkun starfsfólks. Hópuppsagnir í fiskvinnslufyrirtækjum víðs vegar um land undanfarnar vikur og mánuði segja sína sögu um ástandið í atvinnugreininni. Stjórnendur HB Granda munu eftir megni liðsinna fólki við að komast í vinnu annars staðar," segir að lokum í yfirlýsingunni á heimasíðu HB Granda. Hugðust flytja alla starfsemi upp á Akranes HB Grandi greindi frá því á síðasta ári að félagið hygðist hætta allri fiskvinnslu í Reykjavík og flytja hana upp á Akranes þar sem hugmyndin var að reisa nýtt fiskiðjuver. Átti að grípa til þess vegna samdráttar á þorskkvóta. Var óskað eftir samstarfi við Faxaflóahafnir um að flýta uppbyggingu hafnarsvæðis á Akranesi vegna þessa þannig að ný fiskihöfn risi á næsta ári. Svo kom í ljós að stjórnendur HB Granda vildu fá lóð við Grandagarð við Reykjavíkurhöfn skammt frá starfssstöðvum félagsins en ekki náðist samkomulag um hana milli Faxaflóahafna og fyrirtækisins. Félagið tilkynnti svo í september að það hefði hætt við að flytja upp á Akranes. Sagði félagið það vegna þess að Faxaflóahafnir hefðu ekki talið sér fært að uppfylla óskir HB Granda um gerð nýrrar fiskihafnar á Akranesi.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira