Innlent

Innbrot í Hveragerði

Þrír unglingspiltar voru handteknir í Hveragerði um helgina vegna gruns um nokkur innbrot í bænum. Tveir þeirra viðurkenndu að hafa farið inn í tvö íbúðarhús í Hveragerði og stela flatskjáum. Því til viðbótar játuðu þeir innbrot í grunnskóla Hveragerðis þar sem þeir stálu skjávarpa og í Eden þar sem þeir höfðu á brott með sér tvær tölvur og sjóðvél. Þriðji tók ekki þátt í innbrotunum sjálfur heldur var hann sá sem fékk hina til þess verks. Að sögn lögreglu eru málin talin upplýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×