Ekki hægt að hleypa öllum að auðlindinni í sjónum Heimir Már Pétursson skrifar 16. janúar 2008 12:27
Varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis segir að álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnunarkerfið sé ákveðið áfall fyrir Íslendinga. Formaður nefndarinnar segir ekki hægt að hleypa öllum að auðlindinni í sjónum vegna þess að þá yrðu veiðarnar stjórnlausar. Sjávarútvegsnefnd Alþingis kom saman til fundar í morgun þar sem aðalumræðuefnið var álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið bryti í bága við mannréttindi. Karl V. Matthíasson, varaformur sjávarútvegsnefndar, segir aðspurður hvort álitið sé áfall fyrir íslenska fiskveiðikerfið að þetta sé úrskuður um að það þurfi að laga kerfið. Þetta sé mannréttindanefnd og þettta sé því á vissan hátt áfall. Formaður nefndarinnar, Arnbjörg Sveinsdóttir, tekur ekki jafn djúpt í árinni og varaformaðurinn. „Mér finnst ekkert hafa komið fram sem segir að þetta sé áfall en auðvitað ber okkur eins og alltaf að skoða álit sem koma með þessum hætti," segir Arnbjörg. Karl V. Matthíasson vill að kerfinu verði breytt í þá átt að smábátasjómenn eigi greiðari aðgang að fiskimiðunum. „Það hefur sýnt sig að smábátaútgerð hefur dalað og byggðirnar hafa beðið hnekki," segir Karl. Arnbjörg segir ekki hægt að hafa óheftan aðgang að miðunum. Þetta snúist um það að hafa sem hagkvæmasta nýtingu á auðlindinni „og auðvitað byggist þetta upp á því að þeir sem hafa til þess þekkingu og getu eru að nýta hana og skila sem mestum arði af því inn í þjóðarbúið," segir Arnbjörg.
Mest lesið Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Erlent Einhliða vopnahlé Rússa hafið Erlent „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ Innlent Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Innlent „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Innlent Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Innlent Annar snarpur skjálfti við Ljósufjöll Innlent „Þetta er svona eitraður kokteill” Innlent „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ Innlent Fleiri fréttir Annar snarpur skjálfti við Ljósufjöll Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður „Hann var með háðslegt glott, þetta var svo lítið mál“ Skora á stjórnvöld að skoða áhrifin af hærra veiðigjaldi á Vestfirði Konan í gæsluvarðhaldi í mánuð til viðbótar Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara Bein útsending: Staða ungs fatlaðs fólks á húsnæðis- og leigumarkaði Segist hafa tryllst þegar Hafdís hótaði forræðissviptingu Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn geti starfað til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Sjá meira