Utanríkisráðherra leggur fram varnarmálafrumvarp 15. janúar 2008 16:25 MYND/Pjetur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur lagt fram frumvarp til varnarmálalaga á Alþingi, þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Samkvæmt þeim fer utanríkisráðherra fer með yfirstjórn varnarmála og verður starfrækt sérstök stofnun, Varnarmálastofnun, sem sinna mun verkefnum á sviði varnarmála. Stofnunin verður til húsa á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpinu að það byggist á þeirri meginforsendu að Íslendingar séu herlaus þjóð og að ekki sé vilji til þess af hálfu stjórnvalda að breyta þeirri staðreynd. Verið sé að setja skýran lagaramma um verkefni íslenskra stjórnvalda á sviði öryggis- og varnarmála og aðskilnað þeirra frá öðrum verkefnum stjórnvalda sem eru borgaraleg í eðli sínu, svo sem löggæsla og almannavarnir. Verkefni sem snúa að varnarviðbúnaði ríkisins og ytra öryggi þess munu nú Íslendingar vinna en hingað til hafa erlendir hermenn sinnt því. Það breyttist í hitteðfyrra þegar bandaríski herinn kvaddi Miðnesheiði. Samstarf verður þó áfram við önnur ríki um varnir landsins en fram hefur komið að meðal annars Danir og Norðmenn munu sinna eftirliti við Íslandsstrendur. Frumvarpið í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Fleiri fréttir Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Sjá meira