Aldagömlum útgáfum af Snorra-Eddu, Njálu og Völuspá stolið 3. janúar 2008 15:47 MYND/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar fágætra bóka sem stolið var úr einkasafni í Reykjavík á síðari hluta ársins 2006 og fyrri hluta síðasta árs. Meðal verka sem lögregla leitar eru útgáfur af Snorra-Eddu og Völuspá frá 17. öld, Konungasögur Snorra Sturlusonar frá árinu 1633 og ýmsar útgáfur af Njálu frá 19. öld. Enn fremur er leitað að merkum ferðabókum og landfræðiritum eftir bæði íslenska og erlenda höfunda. Þá var gömlum Íslandskortum var stolið úr sama safni og er þeirra einnig leitað. Á vef lögreglunnar má nálgast lista yfir bækurnar sem stolið var. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa upplýsingar um bækurnar og kortin að hafa samband í síma 444-1000.Um er að ræða bækur úr dánarbúi Böðvars Kvaran. Bækrunar sem stolið var skipta tugum og kærðu aðstandendur þjófnaðinn til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðla sumars eftir því sem fram kom í Fréttablaðinu í síðasta mánuði.Að sögn Ómars Smára Ármannssonar, yfirmanns auðgunarbrotadeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er listinn yfir bækurnar birtur nú til þess að vekja athygli á málinu ef fólk skyldi hafa einhverjar bókanna undir höndum. Talið er hugsanlegt að einhverjar bókanna hafi komist í umferð á markaði bókasafnara.Aðspurður hvort talið sé að einhverjir ættingja Böðvars, sem höfðu aðgang safninu, hafi tekið þaðan bækur segir Ómar Smári að það sé alveg eins líklegt. Lögregla hafi rætt við þá en hann gefur ekki upp hver svör þeirra hafi verið. Aðspurður segir Ómar Smári enn fremur að búið sé að finna nokkrar bókanna sem stolið var úr safninu en á listunum sem lögregla birtir séu þær bækur sem saknað er.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira