Eldur í fjölbýlishúsi í Breiðholti í nótt 19. október 2008 09:22
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Vesturbergi í nótt um klukkan hálffjögur. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang enda lagði töluverðan reyk frá húsinu á öllum hæðum. Reykkafarar fóru innn í húsið en íbúar voru beðnir um að halda sig úti á svölum. Átta íbúðir eru í húsinu og var skilaboðum komið til íbúa með gjallarhornum og í gegnum SMS skilaboð. Fólkinu var síðan bjargað af svölunum með hjálp körfubíls en stuttu síðar uppgötvuðu slökkviliðsmenn upptök eldsins en þau voru í geymslu í kjallara. Í geymslunni voru bíldekk og ýmis eldsmatur sem útskýrir hve mikinn reyk lagði um allt húsið. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins þegar upptökin höfðu verið uppgötvuð. Fólk í nærliggjandi stigagöngum var einnig beðið um að halda sig innandyra og loka gluggum sínum. MYND/Egill Sjálfboðaliðar Rauða krossins komu hjólhýsi Rauða krossins á staðinn og gátu þolendur dvalið þar meðan á slökkvistarfi og reykræstingu stóð. Ekki var mögulegt fyrir íbúa hússins að snúa heim um nóttina og var þá farið í að finna gistingu handa þeim sem á þurftu að halda. Rauði krossinn útvegaði fjórum íbúum gistingu á gistihúsi en aðrir gátu komið sér í húsaskjól á annan hátt, svo sem hjá ættingjum. Þá tók Rauði krossinn tímabundið að sér hamstur í fóstur fyrir einn íbúann. Aðgerðum lauk klukkan 5.58. MYND/Egill Engum varð alvarlega meint af reyknum en nokkrir voru fluttir á slysadeild til frekari aðhlynningar. Íbúðirnar í stigaganginum eru hins vegar mikið skemmdar af völdum sóts og reyks og er óvíst hvenær íbúarnir geta flutt inn á ný. Að sögn slölkkviliðsins er ekkert vitað um upptök eldsins að svo stöddu. Engin rafmagnstæki voru í geymslunni sem þykir þó benda til þess að líkur á íkveikju séu meiri en minni.
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sjá meira