Innlent

Sögðu orð borgarstjóra og sjálfstæðismanna stangast á

MYND/GVA

Ekki stendur til að skera niður fjármagn til mannréttindamála í borginni heldur á að verja þeim í vel skilgreind verkefni. Þetta kom fram í máli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar. Borgarfulltrúar minnihlutans bentu á að þessi orð stönguðust á við orð borgarstjóra í fjölmiðlum um að hagræða þyrfti í málaflokknum.

Tekist var á um mannréttindamál á borgarstjórnarfundi í dag en óvissa hefur verið um rekstur mannréttindaskrifstofu borgarinnar eftir að mannréttindastjóri sagði upp um síðustu mánaðamót. Samkvæmt fjárhagsáætlun hundrað daga meirihlutans svokallaða átti að verja um 80 milljónum til mannréttindamála og meðal annars fjölga starfsmönnum á mannréttindaskrifstofu. Í fjölmiðlum hefur Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hins vegar gagnrýnt þá stefnu en hann átti þó aðild að meirihlutanum.

Ekki niðurskurður mannréttindamálum

Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði á borgarstjórnarfundi í dag að ekki stæði til að skera niður fjármuni til mannréttindamála. Hinn nýi meirihluti teldi að það færi betur á því að styrkja einstök verkefni á vettvangi mannréttindamála í stað þess að eyða tilteknu fjármagni í starfsmenn á skrifstofu borgarinnar. Farsælla væri að hafa mannréttindastjóra og verkefnisstjóra og styrkja svo einstök verkefni.

Fulltrúar minnihlutans fögnuðu þessum tíðindum en bentu jafnframt á að yfirlýsingar Hönnu Birnu stönguðust á við orð borgarstjóra í fjölmiðlum. Þannig vísaði Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, til orða borgarstjóra í fréttum. Þar hefði borgarstjóri sagt að verkefni mannréttindaskrifstofu samkvæmt hugmyndum fyrri meirihluta væru óljós og um hagræðingu væri að ræða. Fráfarandi meirihluti hefði verið að víkka út stjórnkerfið. Spurði Sigrún Elsa Smáradóttir hvernig bæri að skilja þetta öðruvísi en að skera ætti niður fjármagn til málaflokksins.

Gagnrýndi minnihlutinn sjálfstæðismenn fyrir að túlka orð borgarstjóra í málinu og kallaði eftir skýringum hans sjálfs. Eðlilegt væri að borgarstjórinn í Reykjavík gerði grein fyrir því hvernig fjármunum í málaflokknum yrði varið. Ef það yrði ekki gert sagðist Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, túlka það svo að hann hefði ekki áhuga eða þekkingu á málaflokknum.

Sakaði minnihluta um sjónarspil

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri kom þá í pontu og gagnrýndi sjónarspil af hálfu minnihlutans. Hann hefði á 18 ára ferli sínum í borgarstjórn aldrei vitað til þess að borgarfulltrúar hefðu bókað um vanþekkingu og mannfyrirlitningu annarra borgarfulltrúa eins og nú hefði verið gert.

Vísaði hann til bókunar frá síðasta borgarráðsfundi þar sem fram hefði komið að núverandi meirihluti hefði ákveðið að veita fjármunum í mannréttindamálum til borgarbúa en ekki til útþenslu stjórnkerfisins. Vísaði hann því á bug að meirihlutinn bæri síður mannréttindi fyrir brjósti en minnihlutinn. Benti hann enn fremur á að starf mannréttindastjóra hefði verið auglýst og hann yrði ráðinn innan skamms. Við hlið hans myndi starfa verkefnisstjóri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×