Neitar sök í manndrápsmáli og telur sig vita hver var að verki 30. apríl 2008 10:28
Karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður er fyrir manndráp í fjölbýlishúsi við Hringbraut í október í fyrra, neitar sök og telur sig vita hver hafi verið á ferðinni umræddan dag. Þetta kom fram við aðalmeðferð í málinu sem hófst í morgun. Skýrslur hafa verið teknar af hinum ákærða og lögreglumönnum sem komu fyrstir á vettvang en aðalmeðferð stendur yfir í allan dag. Manninum er gefið að sök að hafa 7. október í fyrra veitt nágranna sínum þrjú högg í höfuðið með slökkvitæki. Við það brotnaði höfuðkúpa fórnarlambsins á þremur stöðum þannig að það blæddi inn á hana og maðurinn lést í kjölfarið. Hinn ákærði sagði að ekkert ósætti hefði verið á milli sín og fórnarlambsins en þeir hefðu verið að drekka saman kvöldið og morguninn áður en maðurinn lést. Hann segir fórnarlambið hafa sofnað inni í íbúð sinni um hádegið og þá hafi hann yfirgefið íbúðina. Hann hafi síðan farið í íbúð hins látna, stuttu seinna, eða um hádegi og komið að honum með kodda fyrir andliti. Hann hafi tekið koddann frá og blóðið þá fossað á móti honum. Hinn ákærði telur sig vita hver hafi drepið manninn og telur líklegt að hann hafa komið inn um svaladyr á íbúðinni. Lögregla segir hins vegar að útilokað sé að nokkur hafi komið inn um svaladyrnar. Enn fremur kom fram við aðalmeðferðina að blóðug föt hefðu fundist inni hjá hinum ákærða en hann skýrði það á þá leið að hann hlyti að hafa þurrkað sér í þau eftir að hafa fundið nágranna sinn alblóðugan. Þá fundust áverkar á höndum hins ákærða sem benda til aðildar hans að málinu. Sem fyrr segir er hann grunaður um að hafa slegið fórnarlambið með duftslökkvitæki en duft fannst í íbúð hins látna. Rannsóknarlögreglumaður sem bar vitni sagði að öryggismyndavélar sýndu að svo virtist sem mennirnir hefðu verið að rífast áður en annar þeirra hefði fundist látinn. Nágrannar báru enn fremur vitni og sögðu að engin merki hefðu verið um mannaferðir í húsinu þann daginn.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira