Innlent

Fleiri flugmönnum sagt upp hjá Icelandair

MYND/Vilhelm

Icelandair hefur sagt upp 16 flugmönnum til viðbótar þeim sem þegar hefur verið sagt upp á síðustu vikum og mánuðum. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Var ástæða uppsagnanna sögð minnkandi verkefni fyrirtækisins.

Í júní var um 80 flugmönnum sagt upp hjá félaginu í viðamiklum sparnaðaraðgerðum og þá var átta sagt upp nýverið. Þegar við bætast sextán flugmenn er heildarfjöldi flugmanna sem sagt hefur verið upp hjá Icelandair kominn yfir 110.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×