Dettifossvegur á beinu brautina 16. september 2008 12:22
Ekkert getur nú komið í veg fyrir að Dettifossvegur, gamalkunnugt þrætuepli á Norðausturlandi, verði lagður. Um mikla samgönubót verður að ræða. Framkvæmdir við Dettifossveg eru nú loks að hefjast eftir tveggja mánaða tafir í sumar þegar tveir af landeigendum svæðisins sem vegurinn liggur um, neituðu að skrifa undir samning um eignarnámsbætur. Nú hefur verið lögð fram trygging um bæturnar í kjölfar þess að eignarnámsnefnd fór um og kortlagði svæðið allt og lagði fram greinargerð. Aðilar í ferðaþjónustu og þá ekki síst á Norðausturlandinu hafa beðið árum saman eftir nýjum Dettifossvegi. Þetta verður heilsársvegur með bundnu slitlagi í stað malarvegar nú og algjör bylting að sögn hótelstjórans í Hótel Reynihlíð, Péturs Snæbjörnssonar. Dettifossvegur á að vera tilbúinn fyrir 1. október 2009. Hann verður 22 kílómetra langur. Árni Helgason verktaki bauð 564 milljónir í stærsta verkhlutann sem var nokkuð undir kostnaðaráætlun. Heildarframkvæmdakostnaður verður nokkuð hærri. Birgir Guðmundsson sem fer fyrir Vegagerðinni á Norðurlandi segir óheppilegt að ekki hafi verið hægt að hefja framkvæmdir fyrr en nú, en norðaustursvæðið sé gjarnan þurrviðrasamt á haustin og því sé mögulegt að komast vel af stað í verkinu í haust verði tíðarfar hagstætt.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira