Innlent

Hnífaskotskífumálið: Börnin fá þjónustu á BUGLi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Börnin hafa fengið þjónustu í Barnahúsi og á BUGLi.
Börnin hafa fengið þjónustu í Barnahúsi og á BUGLi.

Börnin þrjú sem sættu alvarlegu ofbeldi af hendi föður síns á heimili þeirra á höfuðborgarsvæðinu gengur vel að aðlagast breyttum aðstæðum. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis sagði frá máli þeirra í september. Börnin sættu alvarlegu ofbeldi af hálfu föður síns og var eitt þeirra meðal annars notað sem hnífaskotskífa. Eftir að málið komst upp fóru börnin í fóstur til afa síns og konunnar hans. Þar hafa þau nú verið í átta mánuði.

„Það gengur bara mjög vel. Þau eru að fá mjög góða þjónustu, bæði á BUGLi og Barnahúsi og bara nefndu það," segir stjúpamman í samtali við Vísi. Börnin fái viðtöl í hverri viku. Stjúpamman segir að þeim líði mjög vel í skólanum og hafi það gott. „Þau hafa það mjög gott krakkarnir, miðað við það sem þau eru búin að upplifa," segir stjúpamman. Hún segir að þau séu ófeimin við að tala um upplifun sína við alla sem þau umgangast. Hún segir jafnframt að það sé mjög vel tekið á móti börnunum í skólanum þeirra, en börnin eru ekki í sama skóla.

Stjúpamman segir að félagsráðgjafinn sem hafi unnið með málið hafi unnið mjög gott starf. Öllum hlutaðeigandi hafi verið boðin áfallahjálp og önnur þjónusta sem í boði hafi verið. „En þetta er svona visst ferli til að fara í gegn og auðvitað tekur þetta svona dýfur," segir hún.












Tengdar fréttir

Notuðu barn sitt sem hnífaskotskífu

Rannsókn stendur yfir á máli þriggja barna á höfuðborgarsvæðinu sem sætt hafa alvarlegu ofbeldi af hálfu foreldris. Meðal annars hefur eitt þeirra verið notað sem hnífaskotskífa.

Rannsókn á lokastigi í alvarlegu barnaverndarmáli

Rannsókn á máli þriggja barna sem talin eru hafa sætt alvarlegu ofbeldi af hálfu föður síns er á lokastigi. Þetta staðfesti yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í dag.

Sífellt álag á rannsóknardeild lögreglunnar

„Ég veit ekki hvað segja skal - ég veit ekki hvað er eðlilegur tími fyrir rannsókn af þessum toga," segir Friðrik Smári Björgvinsson. 24 stundir greindu frá því í dag að álag á lögreglu hefði tafið rannsókn á ofbeldi föður gegn þremur börnum. Umfjöllun fjölmiðla hafi komið málinu af stað á ný.

Rannsókn lokið á máli ofbeldisfulls föður

Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið við rannsókn á máli föður á höfuðborgarsvæðinu, sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín ofbeldi. Hann er meðal annars grunaður um að hafa notað eitt þeirra sem hnífaskotskífu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×