Innlent

Íslensk stjórnvöld hefðu getað komið í veg fyrir milliríkjadeilu við Breta

Daginn áður en neyðarlög voru sett á bankana buðust bresk yfirvöld til að taka alla Icesave reikninga undir sína ábyrgð á fimm dögum, gegn því að Seðlabankinn lánaði Landsbankanum 200 milljónir punda í tryggingu. Þetta kemur fram í viðtali við Björgólf Thor Björgólfsson í Kompási annað kvöld. Hann fullyrðir að ef þessu góða boði hefði verið tekið stæði landið ekki í harðvítugri milliríkjadeilu og með laskaða ímynd. Það að Seðlabankinn hafi hafnað því að gangast í þessa ábyrgð mánudaginn 6. október skýri harkaleg viðbrögð bresku fjármála- og forsætisráðherranna.

Icesave reikningar Landsbankans hafa reynst Íslendingum dýrir, sett bankann í hóp hryðjuverkaríkja og samtaka og stefnt öllum íslenskum hagsmunum erlendis í uppnám.

Í viðtali við Björgólf Thor Björgólfsson í Kompási annað kvöld fullyrðir hann að ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafi klúðrað tækifæri til að afstýra þessu með því að koma Icesave reikningunum í breska ábyrgð.

Mánuðum saman hafi breska fjármálaeftirlitið sýnt þvergirðingshátt og neitað að axla ábyrgð á þessum reikningum en sunnudaginn örlagaríka, 5. október, daginn áður en neyðarlögin voru sett var komið allt annað hljóð í strokkinn.

Björgólfur fullyrðir að breska ríkið hafi sagt að það væri komin ný stefna og að það taki fimm daga að koma Icesave í breska lögsögu. Það hafi verið háð því að Landsbankinn myndi leggja inn 200 milljón pund sem tryggingu. Landsbankinn hafi beðið um slíka fyrirgreiðslu frá Seðlabankanum á sunnudeginum í góðri trú um að menn myndu fá það. Síðla um daginn hafi komið svar frá Landsbankanum um að engin fyrirgreiðsla fengist. Björgólfur segir að ef unnið hefði verið að þessu væri Icesave komið í breska lögsögu og millríkjadeilan væri ekki í gangi. Björgólfur segir að Landsbankinn hafi boðið fimmfalt veð fyrir láninu hjá Seðlabankanum.

Daginn eftir að Seðlabankinn hafnaði láni til Landsbankans og bankinn var tekinn með neyðarlögum hringdi Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta í Árna Mathiesen. Björgólfur Thor telur að í samtalinu hafi Darling, furðu lostinn, vísað í að Landsbankinn hafi ekki fengið fyrirgreiðslu deginum áður.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×