Sóley ósátt við Jóhönnu 23. október 2008 20:15 Sóley Tómasdóttir.
Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, hefur ritað Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, opið bréf vegna ákvörðunar félagsmálaráðuneytisins að fresta jafnréttisþingi fram í janúar á næsta ári. Félagsmálaráðuneytinu þykir ólíklegt að jafnréttisþingið nái markmiðum sínum í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar þar sem fjölmargir þeirra sem ráðuneytið vilji virkja þar til umræðu séu bundnir við að ráða fram úr aðkallandi úrlausnarefnum sem tengjast þeim aðstæðum sem ríkja á fjármálamarkaði. ,,Ákvörðunin og sá rökstuðningur sem fylgir veldur mér sárum vonbrigðum," segir Sóley. Varaborgarfulltrúinn segir að femínistar og kynjafræðingar hafi bundið vonir við að fyrirhugað jafnréttisþing yrði nýtt til umræðna um þau gildi sem nauðsynlegt er að koma að í samfélagi framtíðarinnar. ,,Þar hefðu umræður um kynjaða hagstjórn, kynbundið ofbeldi, kynjað velferðarkerfi og kynjaðan atvinnumarkað átt erindi." Viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru ekki til marks um að breytinga sé að vænta á sviði kynjajafnréttis, að mati Sóleyjar. ,,Steininn tekur svo úr, nú þegar þú, ráðherra jafnréttismála, ákveður að fresta jafnréttisþingi og beita þér þannig beinlínis gegn því að kynjasjónarmið verði samþætt þeim aðkallandi úrlausnarefnum sem nú knýja dyra," segir Sóley. Að lokum hvetur Sóley Jóhönnu til að endurskoða ákvörðunina og sinna skyldum sínum á sviði kynjajafnréttis því oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira