MS sjúklingur fær ekki kraftaverkalyf sökum sumarleyfa 27. júní 2008 19:36
Guðrún Sigríður Einarsdóttir er með MS sjúkdóminn en fær ekki hið byltingarkennda Tysabri lyf sökum sumarleyfa á Landspítalanum. Hún segir hvert kast skilja eftir sig skemmdir og fötlunin aukist. "Ég er ennþá að bíða. Og biðin er löng og mjög erfið," sagði Guðrún Sigríður, sem þurfti að hætta kennslu fyrir um ellefu árum síðan þegar hún greindist með MS sjúkdóminn, á Stöð 2 í kvöld. "Ég lendi í sífelldum köstum. Hvert einasta kast skilur eftir sig skemmdir og fötlunin verður alltaf meiri og meiri. Líðanin verður alltaf verri og verri." Stöð 2 hefur greint frá ótrúlegum árangri sem nýtt taugalyf Tysabri getur haft á MS sjúklinga. Í fréttum í kvöld var einnig rætt við Svanfríði Kjartansdóttur sem greindist árið 1992 með MS-sjúkdóminn og sá ekki framför fyrr en hún var sett á lyfið. "Daginn eftir fann ég strax mun. Ég var í meira jafnvægi og þegar ég fór í sturtu um morguninn þurfti ég ekki að kalla á hjálp," sagði hún. Nóg er til af Tysabri á Landspítalanum en tugir MS-sjúklinga eru á biðlista eftir að hefja lyfjagjöf vegna þess að ekki er fjármagn eða mannskapur til að gefa lyfið nema einn dag í viku. Og nú er sjúklingum tjáð að sumarleyfi aftri því að þeir fái kraftaverkalyfið í æð. "Lyfin eru til og við erum tilbúin að taka á móti þeim," sagði Guðrún Sigríður. "Það vantar bara aðstöðu svo fleiri komist að."
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira