Innlent

Samfylking tapar fylgi

Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar.
Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. MYND/Anton Brink

Samfylkingin nýtur stuðnings tæplega 26 prósenta landsmanna og tapar nokkru fylgi, samkvæmt nýrri könnun Gallups fyrir Ríkisútvarpið sem greint var frá í kvöldfréttum útvarps.

Vinstri grænir bæta við sig fjórum prósentum frá síðustu könnun og mælast nú með 21 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn stendur í stað með 37 prósenta fylgi, Framsóknarflokkurinn er með tæp tíu prósent og Frjálslyndi flokkurinn með tæp sex prósent. Fylgi ríkisstjórnarinnar hefur minnkað um 9 prósent frá síðustu könnun Gallups og er nú rúm 58 prósent. Jóhanna Sigurðardóttir er vinsælust ráðherranna með 60 prósent en hefur þó lækkað um 10 prósentustig frá síðustu könnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×