Íslendingar með formennsku í norrænu ráðherranefndinni á næsta ári 28. október 2008 09:02 MYND/Stöð 2
Íslendingar gegna formennsku í norrænu ráðherranefndinni á næsta ári og mun Geir H. Haarde kynna formennskuáætlunina á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í dag. Yfirskrift formennskuáætlunarinnar er Norrænn áttaviti og er gerð grein fyrir helstu stefnumálum í fjórum undirköflum. Rauður þráður í áætluninni er að stórefla samstarf um rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði loftslags-, orku- og umhverfismála. Þannig vilja Íslendingar samstarf við gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið sem verður grundvöllur fyrir samræmdar aðgerðir komi til umhverfisslyss, þverfaglegt samstarf sem miðar að því að efla frumkvöðlamenningu á öllum stigum skólakerfisins og átak til að auka áhuga á norrænum menningar- og málskilningi. „Efnt verður til fjölmargra ráðstefna og málþinga á Íslandi á formennskuárinu 2009, m.a. um nýsköpunarmennt, gæði í norrænu háskólastarfi og nýsköpun í sjávarútvegi. Stærsti viðburðurinn verður hnattvæðingarþing í lok febrúar, þar sem orku- og umhverfismál verða til umræðu. Sérþekking og nýsköpun norrænna þjóða í umhverfistækni og endnýjanlegum orkugjöfum verður þar í forgrunni. Á þinginu verða saman komnir forsætisráðherrar Norðurlanda, samstarfsráðherrar, forystumenn í norrænu atvinnulífi og fremstu sérfræðingar um hnattvæðingu og nýsköpun," segir í tilkynningu norrænu ráðherranefndarinnar.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Fleiri fréttir Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ Sjá meira