Ekki rætt um flatan 10 prósenta niðurskurð í heilbrigðisráðuneyti 21. nóvember 2008 11:36 MYND/Auðunn
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir ekki rætt um flatan tíu prósenta niðurskurð í heilbrigðisráðuneytinu og að ríkisstjórnin geri allt sem hún geti til þess að verja velferðarkerfið, þar á meðal heilbrigðisþjónustuna. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Þuríðar Backman, þingmanns Vinstri - grænna, í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Þuríður vísaði til bréfs fjármálaráðuneytisins um að ráðuneyti legðu fram tillögur um tíu prósenta sparnað miðað við fjárlög næsta árs vegna efnahagsástandsins. Spurði Þuríður hvort þetta væri forgangsröðunin hjá ríkisstjórninni og hvort ekki ætti að standa við fyrirheitin um að verja velferðarkerfið. Benti hún enn fremur á að fjölmargar heilbrigðsstofnanir glímdu nú við fjárhagserfiðleika nú þegar og spurði hvort tíu prósenta niðurskurður þýddi skerta þjónustu eða hvort kostnaði yrði velt yfir á sjúklinga. Guðlaugur Þór sagði breytingar í efnahagslífinu kalla á endurskoðun fjárlagafrumvarps en ekki væri þó verið að ræða um flatan niðurskurð í ráðuneyti hans. Ríkisstjórnin gerði allt til þess að verja heilbrigðiskerfið. Þá sagði hann að hins vegar væri verið að huga að skipulagsbreytingum og ýmsum aðgerðum til þess að fá eins mikla þjónustu og hægt yrði fyrir þá fjármuni sem til væru. Horft hefði verið til nágrannaríkjanna í þessum efnum sem einnig glímdu við þau verkefni.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira