Innlent

Ingibjörg Sólrún fundar með utanríkisráðherra Bandaríkjanna

Ingibjörg Sólrún mun funda með Rice í Washington.
Ingibjörg Sólrún mun funda með Rice í Washington.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, heldur til Washington borgar dagana 11.-13. apríl næstkomandi, þar sem hún mun funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og sitja fund þróunarnefndar Alþjóðabankans. Ísland gegnir nú formennsku í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í bankanum.

Á fundi sínum á morgun, föstudag, munu Ingibjörg Sólrún og Condoleezza Rice ræða framtíð öryggis- og varnarsamstarfs ríkjanna en í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins árið 2006 var samþykkt að efla reglulegt pólitískt samráð. Verður útfærsla þessa samráðs til umræðu, auk viðskipta landanna og annarra mála.

Síðar sama dag fundar utanríkisráðherra með Women´s Foreign Policy Group, sem er félagsskapur áhrifakvenna um utanríkismál og tekur á laugardag þátt í morgunverðarfundi ráðgjafanefndar Alþjóðabankans um málefni kvenna, þar sem hún á sæti m.a. ásamt öðrum ráðherrum frá Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Líberíu og Egyptalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×