Matvælafrumvarp ekki sett í salt 16. október 2008 11:11 MYND/GVA
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hyggst ekki setja frumvarp um innflutning á matvælum í salt eins og farið var fram á Alþingi í dag. Þar sögðu stjórnarandstæðingar að matvælaöryggi þjóðarinnar væri ógnað og sömuleiðis störfum bænda ef frumvarpið yrði að veruleika. Frumvarpið gerir meðal annars ráð fyrir frjálsum innflutningi á hráu kjöti og er hluti af því sem innleiða ber í tengslum við EES-samninginn. Atli Gíslason, þingmaður Vinstri - grænna, benti á erfiða stöðu bænda í landinu. Aðföng hefðu hækkað og sömuleiðis myndi vaxtakostnaður og flutningskostnaður aukast. Fjölmargir kúabændur væru komnir í þrot vegna ástandsins og það væri veruleikafirring af hálfu ráðherra að hafa matvælafrumvarpið í forgangi. Það væri ógnun við matvælaöryggi þjóðarinnar og störf bænda. Við mættum ekki missa einn einasta bónda úr rekstri við núverandi aðstæður. Spurði hann ráðherra hvernig hann hygðist tryggja afkomu bænda og hvort hann myndi beita sér fyrir frystingu lána þeirra eða endurfjármögnunar. Staða bænda alvarleg Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði stöðu bænda alvarlega. Þeir glímdu við sömu vandamál og menn almennt í atvinnulífinu vegna lækkunar gengis og hárra vaxta. Stóra verkefnið væri að koma á eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum því innflutningur væri minni en útflutningur. Þá sagði hann ráðuneytið hafa þegar í samstarfi við Bændasamtökin óskað eftir viðræðum við hinn nýja Landsbanka en þangað hefði hin gamla stofnlánadeild landbúnaðarins farið á sínum tíma. Hann teldi að töluverður hluti af skuldum bænda væru í þeim banka. Þá sagði ráðherra að skoða þyrfti hvort frysta ætti lán bænda en þeir byggju við blandaðan rekstur bús og heimilis. Enn fremur sagði hann þegar hafna úttekt á vanda bænda. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði ráðherra einnig um málið, meðal ananrs hvort til greina kæmi að draga matvælafrumvarpið til baka vegna erfiðleikanna sem nú gengju yfir landið. Frumvarpið ógnaði matvælaöryggi og störfum bænda. Einar svaraði því til að ekki væri ætlunin að fresta frumvarpinu. Unnið hefði verið að því í sumar eftir að það var ekki samþykkt í vor og sú vinna hefði meðal annars snúið að því að tryggja varnir fyrir íslenskan landbúnað. Hluti af matvælaöryggi landsins væri enn fremur að við gætum tryggt að það gætu átt sér eðlileg viðskipti milli þjóða. Frumvarpið hefði meðal annars það hlutverk að við gætum verið með heilbrigð matvæli hér á landi og því væri það ekki tilræði við matvælaöryggi. Þá væri það ekki tilræði við hagsmuni bænda og sagði Einar að samkeppnisstaða landbúnaðarins hér á landi væri góð.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira