Sjálfsvíg fátíð á geðdeildum 22. september 2008 19:15
Hundruð manna eru lagðir inn á geðdeildir Landspítalans á hverju ári vegna þess að hætta er talin á að þeir svipti sig lífi. Afar fátítt er að mönnum takist að fremja sjálfsvíg inni á geðdeildum og þeir eru öruggari inni en úti í þjóðfélaginu, segir yfirlæknir bráðamóttöku geðdeildanna. Eins og sagt var frá í fréttum Stöðvar 2 fyrir helgi þá tók karlmaður sitt eigið líf nýverið á meðan hann lá inni á geðdeild Landspítalans. Mannslát sem þessi eru ævinlega send til skoðunar hjá Landlæknisembættinu og til lögreglu. Afar fátítt mun vera að mönnum takist að svipta sig lífi inni á geðdeildum - þótt erfitt sé að nálgast tölur um það. Eftir því sem næst verður komist hafa þrír til fjórir einstaklingar svipt sig lífi á geðdeildum Landspítalans við Hringbraut á síðustu 20 árum. Þó hefur þeim sem leita til spítalans fjölgað undanfarinn áratug og stór hluti þeirra er í sjálfsvígshættu. Tólf hundruð sinnum á ári er manneskja talin svo veik að leggja þurfi hana inn á geðdeild Landspítalans við Hringbraut. Þar af eru fjögur til fimmhundruð skipti vegna þess að viðkomandi er talinn í sjálfsvígshættu. En þá er ekki allt talið - upp undir 25 manneskjur leita til bráðamóttöku geðdeildanna á hverjum degi, sem þýðir að fólk leitar þangað um 9000 sinnum á hverju ári. Inni í þessari tölu eru ekki þeir sem eru að koma í reglubundið eftirlit eða viðtalstíma. Aðstoðarlandlæknir sagði fyrir helgi ekki hægt að fyrirbyggja öll sjálfsvíg inni á geðdeildum, til þess sé geðlæknisfræðin of skammt á veg komin. Halldóra tekur í sama streng. Halldóra segir ekki manneklu á geðdeildunum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira