Nemakort Strætó bs. fyrir alla nema suma Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. ágúst 2008 12:36
Ekki eru allir á eitt sáttir með hin svokölluðu Nemakort Strætó bs., strætisvagnakort sem sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu standa að og veita námsmönnum ókeypis aðgang að almenningsvögnum Strætó. Sá böggull fylgir þó skammrifi að handhafi slíks korts verður að eiga lögheimili í einhverjum hinna sex sveitarfélaga sem að kortinu standa (um er að ræða Reykjavík, Hafnarfjörð, Kópavog, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ og Álftanes) og auk þess að hafa aðgang að heimabanka. „Það eru einkum tveir punktar sem við erum óhress með," segir Björg Magnúsdóttir, formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands. „Fólk utan þessara sex sveitarfélaga fær ekki kort, Garðabær hefur til dæmis neitað að taka þátt í samstarfinu auk þess sem þetta er alveg glatað fyrir stúdenta sem búa úti á landi og eru með lögheimili þar," segir hún enn fremur. Björg segir minnihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur hafa lagt fram bókun í gær þar sem Strætó bs. er hvatt til að veita námsmönnum með lögheimili úti á landi nemakort svo jafnræðis sé gætt. Enn fremur bendir Björg á að útlendingar sem koma til náms í styttri tíma og flytja ekki lögheimili sitt til Íslands njóti þjónustunnar ekki. Stúdentaráð vinnur að sögn Bjargar að tillögum um leiðir til úrbóta og kveðst hún óánægð með að fyrirsvarsmenn stjórnsýslu og fyrirtækja bendi hver á annan, þannig bendi Strætó á sveitarfélögin og öfugt. Ekki náðist í Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætó, til að inna hann álits.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira