Innlent

Nýjum forstjóra færð viðurkenning

Hildur Helga Gísladóttir, Margrét Sverrisdóttir, Hulda Gunnlaugsdóttir, Bryndís Barnarson og Halldóra Traustadóttir.
Hildur Helga Gísladóttir, Margrét Sverrisdóttir, Hulda Gunnlaugsdóttir, Bryndís Barnarson og Halldóra Traustadóttir.

Kvenréttindafélag Íslands afhenti Huldu Gunnlaugsdóttur, nýjum forstjóra Landspítalans, viðurkenningu nýverið. Félagið hefur haft þann háttinn á undanfarin ár að vekja athygli landsmanna á því sérstaklega þegar kona velst til starfa á sviðum þar sem karlar hafa eingöngu gegnt forystu áður.

Hulda er fyrsta konan sem gegnir starfi forstjóra Landspítalans. Af því tilefni færðu fulltrúar Kvenréttindafélags Íslands Huldu blómvönd í viðurkenningarskyni.

,,Mikilvægt er að börn og ungt fólk að hafa fyrirmyndir af báðum kynjum í stjórnunar- og valdastöðum," segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×