Innlent

Útspil Björns vanhugsað

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins.
Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins.

Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, segir vandræðagang einkenna forystu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum. Hún segir tillögu Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, vanhugsaða.

,,Miðað við Björn Bjarnason er þetta sett fram vanhugsað," segir Valgerður og veltir fyrir sér hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé að klofna.

,,Það sem gerir þetta sérstaklega athyglisvert er að Björn er í Davíðs-liðinu og nær Davíð heldur en nokkur annar ráðherra í ríkisstjórninni. Engu að síður setur hann þetta fram," segir Valgerður.

Valgerður telur að nýleg yfirlýsing Félag íslenskra stórkaupmanna þar sem stjórnvöld voru hvött til að hefja aðildarviðræður um inngöngu í Evrópusambandið vera ástæðuna fyrir tillögu Björns. ,,Þetta er sett fram undir áhrifum frá stórkaupmönnum sem standa ákaflega nærri hjarta Sjálfstæðismanna."

,,Forsætisráðherra segir að við séum að fást við skammtímavandamál í efnhagsmálum og því ekki ástæða til að ræða Evrópusambandið. Raunin er að við erum að ræða langtímavandamál sem snýst um að íslenska krónan þjónar okkur ekki lengur," segir Valgerður og kallar eftir umræðu um langtíma hagsmuni þjóðarinnar.

Valgerður telur að Sjálfstæðisflokkurinn skipti um stefnu í Evrópumálum á næsta landsfundi flokksins.




Tengdar fréttir

Segir hugmyndir Björns fjarlægan möguleika

Geir H. Haarde forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í Stjórnarráðinu nú fyrir stundu. Tilefnið voru ummæli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um að taka ætti upp evru á grundvelli EES samningsins án þess að ganga inn í Evrópusambandið. Geir sagði þetta fjarlægan möguleika og taldi ráðamenn í Brussel hafa lítið álit á þessum hugmyndum.

Seðlabankinn tjáir sig ekki um evruhugmyndir Björns

Enginn Seðlabankastjóranna þriggja vill tjá sig um hugmyndir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um að taka upp evru á grundvelli EES samningsins. Vísir leitaði eftir viðbrögðum frá þeim fyrr í dag en var tjáð að þeir hefðu ekkert við það að bæta sem þeir hafi áður sagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×