Létu ryðja fundarsal NATO til að skamma Breta 16. október 2008 12:02
Íslendingar óskuðu eftir því á fundi NATO-ráðsins í gær að salurinn yrði rýmdur þannig að þar sætu aðeins fastafulltrúar aðildarríkjanna og framkvæmdastjóri bandalagsins. Eftir að salurinn hafði verið rýmdur tók Þorsteinn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands hjá NATO, til máls og gerði harða hríð að Bretum. Hann sagði Breta hafa misnotað hryðjuverkalöggjöf sína gegn Íslandi og valdið landinu miklu tjóni. Taldi hann aðgerðir Breta ógna öryggi þjóðarinnar í víðtækum skilningi. Hugsanlegt fjögurra milljarða evra lán Rússa til Íslands mun einnig hafa komið til umræðu á þessum fundi. NATO mun lítt hrifið af þeim möguleika. Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði í samtali við fréttastofuna að þótt ekki sé algengt að fundir séu lokaðir hjá NATO-ráðinu gerist það þó öðru hvoru ef þurfi að ræða sérstaklega viðkvæm mál. Slíkt gerist einnig hjá öðrum alþjóðasamtökum eins og til dæmis Evrópusambandinu. Morgunblaðið segir að eftir fundinn hafi Jaap de Hoop Scheffer hringt í Geir H. Haarde, forsætisráðherra og þeir rætt málið. Ekki hefur verið upplýst hvað þeim fór í milli.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira