Innlent

Frakkarnir eru komnir

Fjórar franskar Mirage 2000 orrustuþotur lentu á Keflavíkurflugvelli skömmu fyrir hádegi. Þær munu sinna eftirliti með íslensku lofthelginni næstu sex vikurnar. Hundrað og tíu manna sveit fylgir þotunum.

Þetta er í fyrsta sinn sem aðrir en Bandaríkjamenn sinna gæslu í lofthelgi Íslands. Samkvæmt ákvörðun fastaráðs Atlantshafsbandalagsins sem samþykkt var í júlí síðastliðnum mun Ísland sjá um eftirlit en NATO-ríki með herafla skiptast á gæslu.

Gert er ráð fyrir viðveru sveita fjórum sinnum á ári í tvær til þrjár vikur í senn en það er þó háð breytingum verði metið að það þurfi að auka. Gæslan nú sem er sú fyrsta samkvæmt nýju samkomulagi verður í fimm til sex vikur eða tvöfallt lengri en áætlað er í framhaldinu.

Á blaðamannafundi með Gilles Bertrand, yfirmanni frönsku flugsveitarinnar, í utanríkisráðuneytinu í morgun kom fram að það væri metið svo að fyrsta gæslusveitin yrði að vera lengur en þær sem á eftir kæmu. Franska sveitin legði línurnar.

Bertrand sagði að með þátttöku sinni væru Frakkar að sýna samstöðu með Atlantshafsbandlaginu sem hefði metið það svo að gæslu þyrfti. Hann sagði þátttöku Frakka í gæslunni hér ekki til marks um að ákvörðun hefði verið tekin um að Frakkar tækju aftur að fullu þátt í hernaðarsamstarfinu innan NATO.

Bandaríkjamenn, með aðstoð Kanadamanna, taka þátt í gæslu lofthelginnar í september næstkomandi og búist við að Bretar geri það í lok árs. Á næsta ári er ákveðið að Spánverjar sendi sveit og Bandaríkjamenn einnig en eftir er að negla niður að Danir geri það líka. Árið 2010 er opið en vitað er að 2011 senda Pólverjar sveit með nýjar F-16 orrustuþotur sínar.

MYND/Víkurfréttir
MYND/Víkufréttir
MYND/Víkufréttir
MYND/Víkufréttir
MYND/Víkufréttir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×