Saka stjórn um að keyra sjúkratryggingafrumvarp í gengum þingið 7. maí 2008 14:13 MYND/Anton
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu á Alþingi í dag að taka ætti til umfjöllunar frumvarp um sjúkratryggingar sem meðal annars gerir ráð fyrir nýrri sjúkratryggingastofnun. Málið væri of viðamikið til þess að hægt væri að ræða það vel á þeim sjö þingdögum sem eftir væru. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, benti á að búið væri að auglýsa starf forstjóra Sjúkratryggingastofnunar. Vísaði hún til þess að Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður flokksins, hefði gagnrýnt þann hroka sem falist hefði í þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra því stofnunin væri ekki til. Sagði Siv að frumvarp um málið hefði fyrst komið fram í dag. Frumvarpið hefði að geyma 72 greinar og fjögur bráðabirgðaákvæði. Það þyrfti að veita afbrigði frá þingstörfum til þess að taka málið fyrir og núverandi meirihluti væri svo sterkur að hann gæti veitt sjálfum sé afbrigði. Sagði hún það ólíðandi ef það ætti að ætti að klára málið fyrir þinglok. „Á virkilega að traðka hér á þingræðinu?" spurði Siv. Grundvallarbreyting á heilbrigðiskerfinu Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, benti á að fregnir hefðu borist af því að málið hefði verið lengi inni í ríkisstjórninni og mótmælti hún því að klára ætti málið fyrir þinglok. Hér væri á ferðinni grundvallarbreyting á heilbrigðiskerfinu og slíkt þyrfti að ræða ítarlega. Sagði hún betra að forseti þingsins lýsti því yfir að málið yrði geymt til haustsins. Þess má geta að frumvarpið á að taka gildi í haust. Áhersla á að afgreiða málið fyrir vor Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður heilbrigðisnefndar, benti á að vitað hefði verið að von væri á frumvarpinu. Samþykkt hefði verið um áramót frumvarp um breytta verkaskiptingu ráðuneyta en í því hefði verið bráðabirðgaákvæði um heimild til að ráða forstjóra Sjúkratryggingastofnunar. Sagði hún að óskað yrði eftir því að frumvarp um sjúkratryggingar yrði tekið til umræðu á þingi á morgun og svo væri hægt að nýta nefndardaga til þess að ræða það vel. Lögð væri áhersla á að það yrði afgreitt fyrir vorið. Hvenær eiga umsagnaraðilar að gefa álit sitt? Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri - grænna, mótmælti því sem hún kallaði hroka Ástu Möller. Spurði hún hvernig umsagnaraðilar ættu að geta greint frá sínum sjónarmiðum ef fjalla ætti um frumvarpið á nefndardögum í næstu viku. Sjö þingfundadagar væru eftir fram á vor og það væri út úr öllu korti að setja mál, sem gerði ráð fyrir að allt heilbrigðiskerfið færi á markað, nú á dagskrá. Hún treysti því að forseti neitaði að taka málið á dagskrá.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira