Verð á einstökum vörum hefur tvöfaldast á hálfu ári 20. nóvember 2008 16:11 MYND/Valgarður
Dæmi eru um að verð á einstökum vörum í matvöruverslunum hafi hækkað um yfir 100 prósent á síðastliðnu hálfu ári. Þetta leiða verðkannanir ASÍ í ljós. Fram kemur á heimasíðu sambandsins að verðlagseftirlitið hafi verið á ferð á þriðjudag og komst þá að því að matvara hefur hækkað um tugi prósenta á hálfu ári. Algengt er að vörur hafi hækkað um 30-50 prósent frá því í verðkönnun verðlagseftirlitsins í vor en dæmi eru um að verð hafi tvöfaldast sem fyrr segir. Verð hefur almennt hækkað mest í lágvöruverðsverslunum á milli kannana. Verð á brauði, kexi, pasta, og hrísgrjónum hækkaði í flestum tilvikum yfir 50 prósent í lágvöruverðsverlunum en nokkuð minna í öðrum verslunum. Þá hefur verð á mjólk hækkað um 25-30 prósent frá því í vor. ASÍ bendir enn fremur á að grænmeti og ávextir hafi einnig hækkað mikið. Til að mynda hækkaði kílóverð á banönum mest í Bónus, eða um 83 prósent. Minnst hafa bananarnir hækkað í Fjarðarkaupum um fimm prósent. Af öðrum vörum má nefna púðursykur frá Dansukker hefur hækkað um 106 prósent í Krónunni og 88 prósent í Bónus frá því vor. Hann er nú dýrari í lágvöruverðsverslununum en í Hagkaupum og á svipuðu verði og í Nóatúni. „Þegar skoðaður er munur á meðalverði í lágvöruverðsverslunum og öðrum stórmörkuðum nú í nóvember og í vor má sjá að í flestum tilvikum er mun minni munur á meðalverði í þessum verslunargerðum nú en í vor. Verð í lágvöruverðsverslunum hefur almennt hækkað meira en í öðrum verslunum sem þýðir samkvæmt þessu að verðmunur á milli lágvöruverðsverslana og annarra stórmarkaða hefur minnka," segir á vef ASÍ.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira