Franskar herþotur æra Keflvíkinga 25. júní 2008 11:28 MYND/Víkurfréttir
Íbúar í Reykjanesbæ hafa kvartað til bæjarfélagsins vegna hávaða frá Mirage þotum franska flughersins sem nú sér um loftrýmiseftirlit yfir landinu. Bæjarbúar segja að hávaðinn í vélunum sé mun meiri en hann var þegar Bandaríkjamenn voru hér á sínum tíma með sínar herþotur. Ekki hefur borið á kvörtunum hjá utanríkisráðuneytinu. Hjá þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar fengust þær upplýsingar að nokkuð hafi borið á kvörtunum vegna þessa og raunar sagðist starfsmaður þjónustumiðstöðvarinnar vel geta tekið undir þær sjálf. Stundum væri hávaðinn svo mikill að ekki sé hægt að tala í símann. „Það fer ekki framhjá neinum," sagði þjónustufulltrúinn í samtali við Vísi, aðspurð hvort hún hefði orðið vör við aukinn hávaða. „Þeir virðast vera að fljúga meira yfir bæinn sem Bandaríkjamennirnir gerðu ekki," sagði hún og bætti við að síðast hefði hún heyrt í þotu rétt áður en blaðamaður hafði samband. „Við erum mjög vön svona hlutum hér í Keflavík en ég hef heyrt í mörgum nýlega og fólk er orðið dálítið pirrað yfir þessu." Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði í samtali við Vísi að málið hefði ekki borist inn á borð hennar. „Það hafa ekki borist kvartanir nýlega vegna þessa flugs," sagði Urður. „Það komu nokkrar kvartanir í byrjun en ég hafði samband við þá og bað þá um að fara seinna af stað á morgnana og þeir urðu við því," sagði Urður. Hún sagði einnig að lögð sé áhersla á að truflun vegna þotnanna sé sem minnst fyrir bæjarbúa. „Þeim er uppálagt að taka ekki á loft snemma á morgnana og seint á kvöldin. Þá er flug yfir íbúabyggð takmarkað eins mikið og nokkur kostur er," sagði Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira