Bankar hunsa tilmæli ráðherra 21. október 2008 19:03
Bankar og lánastofnanir virðast hunsa tilmæli ríkisstjórnarinnar um frystingu íbúðalána. Dæmi eru um að bankar krefjist vaxtahækkunar gegn því að frysta lán. Hrun krónunnar hefur haft skelfilegar afleiðingar fyrir heimilin í landinu. Lán í erlendri mynt hafa rokið upp og þá munu verðtryggð lán einnig hækka samfara vaxandi verðbólgu. Ríkisstjórnin beindi þeim tilmælum til lánastofnana að hjálpa fólki í greiðsluerfiðleikum meðal annars með því að frysta lán þangað til ró kemst á gjaldeyrismarkaðinn. Bankar virðast þó í mörgum tilvikum hunsa þessi tilmæli. Kristinn Halldór Einarsson lántakandi er ósáttur. „Við hjónin erum með myntkörfu lán á íbúðinni okkar og óskuðum eftir frystingu og vísuðum þá til yfirlýsingar frá ríkisstjórninni. Þar könnuðust menn ekki við eitt eða neitt. En þeir voru tilbúnir til þess að bjóða okkur frystingu gegn því að við myndum samþykkja hækkun á vaxtaálagi úr 2,1 upp í 3,1 prósent." Vaxtaálágið hækkaði því um nærri helming. „Mér finnst þetta vera siðlaust," segir Kristinn. „Það sem bankinn ætlar að gera núna. við erum að lenda í greiðsluerfiðleikum vegna mikillar - mikillar lækkunar á gengi krónunnar og afborganir hafa hækkað mjög mikið. Og þá ætlar bankinn okkar að nýta sér lagið og láta okkur borga sex milljónir extra þóknun yfir lánstímann." Ægir Geirdal sótti um frystingu hjá sínum sparisjóð en fékk neitun hjá þjónustufulltrúa sínum. „Hún sagði að samkvæmt reiknilíkaninu þá kæmi ég ekki til með að geta borgað lánið," sagði hann í samtali við Stöð 2.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira