Héldu upplýsinga- og stuðningsfundi fyrir erlenda starfsmenn LSH 21. október 2008 09:00
Erlendir starfsmenn á Landspítalanum eru uggandi yfir stöðu sinni, launum og réttindamálum og því gripu forsvarsmenn spítalans til þess að halda upplýsinga- og stuðningsfundi fyrir þá í síðustu viku. Fram kemur í tilkynningu Landspítalans að um 160 manns hafi sótt fundina vegna þrenginga í fjármálum á Íslandi. Haldnir voru fundir bæði á ensku og pólsku en alls eru á fjórða hundrað erlendir starfsmenn á Landspítalanum. Rúmur þriðjungur er frá Póllandi en einnig margir frá Filippseyjum og Taílandi.„Starfsmennirnir hafa verið kvíðafullir og fundist vanta upplýsingar frá samfélaginu. Þeir lýstu því mikilli ánægju með framtak spítalans að standa fyrir fundunum og töldu þá gagnlega. Margt hefði skýrst og mörgu verið svarað af spurningum sem hefðu vaknað hjá þeim í þeim óróa sem einkennt hefur íslenskt samfélag undanfarið," segir í tilkynningunni.„Tilgangur með fundunum var að veita stuðning, ráðgjöf og upplýsingar og svara spurningum um ástandið í samfélaginu. Á fundinum voru fulltrúar frá skrifstofu mannauðsmála, stuðnings- og ráðgjafarteymi Landspítala og frá Alþjóðahúsi. Starfsmennirnir eru uggandi yfir stöðu sinni og störfum, launum og réttindamálum. Þeir hafa áhyggjur af lánum, sparnaði og húsnæðismálum og segja að margar misvísandi sögur hafi orðið til sem skapist mest af því að fólk skilji íslensku misvel eða jafnvel alls ekki. Peninga- og bankamál bar mikið á góma.Reynt var eftir bestu getu að veita svör við spurningum sem fram komu, gefa almenn ráð til að bæta líðan erlendu starfsmannanna og hjálpa þeim að takast á við áföll," segir einnig í tilkynningu Landspítalans,.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira