Sanngjarnar og afar góðar tillögur Magnús Már Guðmundsson skrifar 2. júní 2008 17:57 Þórunn Sveinbjarnardóttir
Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, fagnar skýrslu starfshóps um heildarstefnumótun skattlagningar eldsneytis og ökutækja sem kynnt var fyrr í dag. Í samtali við Vísi sagði Þórunn tillögur nefndarinnar vera afar góðar og sanngjarnar og samrýmast vel stefnu og markmiðum stjórnvalda um takmörkun losunar gróðurhúsalofttegunda. Í skýrslunni komi fram sú hugsun að þeir sem mengi meira en aðrir greiði jafnframt fyrir það. Nái tillögur nefndarinnar fram að ganga má m.a. gera ráð fyrir að smábílar sem losa lítið magn koltvísýrings lækki um allt að 30% í verði en á móti munu bílar sem losa mikið magn hækka. Árgjald muni einnig mótast af því hversu mikið viðkomandi bifreiðar losar af gróðurhúsalofttegundum. Engin pólitísk ákvörðun hefur verið tekin um vinnu nefndarinnar en skýrslan var lögð til kynningar í ríkisstjórn fyrir helgi. Fram kom í máli Árna Mathiesen í dag að beðið verður eftir að annars vegar nefnd um almenningssamgöngur sem starfar á vegum samgönguráðuneytisins og hins vegar um flutningsjöfnun á landabyggðinni sem er að störfum í viðskiptaráðuneytinu skili af sér. Stefnt er að því að nýta sumarið til að samræma sjónarmið sem kemur fram í vinnu nefndanna þriggja. Aðspurð segist Þórunn að hún muni beita sér fyrir því að tillögur nefndarinnar er kynntar voru í dag nái fram að ganga. Hún sagðist jafnframt vera vongóð um að frumvarp um málið verði lagt fyrir Alþingi strax í haust.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Sjá meira