Innlent

Akureyrarkirkja bíður upp á ókeypis lögmannaaðstoð

Akureyrarkirkja hefur ákveðið að bjóða íbúum upp á ókeypis lögmannaaðstoð í kreppunni. Hluti sóknarbarna er kvíðinn og reiður og styttist í uppgjör, segir sóknarprestur.

Akureyrarkirkja hefur gert breytingar á starfi og þjónustu vegna kreppunnar. Sérstök dagskrá verður næstu mánudagskvöld til að fólki líði betur. Og þá hefur kirkjan ákveðið að bjóða sóknarbörnum sínum upp á ókeypis lögmannaþjónustu í safnaðarheimili kirkjunnar síðdegis á mánudögum.

Sóknarpresturinn segist finna mikinn mun á hinu almenna sóknarbarni í dag eða fyrir nokkrum vikum.

Skiptar skoðanir hafa verið uppi í samfélaginu um hvort draga skuli menn til ábyrgðar nú eða síðar. Svavar segir uppgjörið óumflýjanlegt og að það eigi eftir að verða öðruvísi en öll önnur uppgjör.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×