Innlent

Ögmundur vill að RÚV greini frá launakostnaði

Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG segir að sú staðreynd að Ríkisútvarpið neiti að láta Vísi í té upplýsingar um laun æðstu stjórnenda sé dæmi um það sem flokkur hans hafi varað við þegar stofnunin var gerð að opinberu hlutafélagi. Hann segist þeirrar skoðunar að launamál RÚV eigi ekki að fela.

Ríkisútvarpið neitar að láta Vísi í té upplýsingar um laun dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins og dagskrárstjóra útvarps, þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi úrskurðað að RÚV sé skylt að veita þessar upplýsingar. Óskar Hrafn Þorvaldsson, ritstjóri Vísis, óskaði eftir upplýsingum um laun Þórhalls Gunnarssonar, ritstjóra Kastljóss og dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, og Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins.

Ríkisútvarpið neitaði að upplýsa um þetta og kærði Óskar því Ríkisútvarpið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin úrskurðaði að RÚV skyldi veita kæranda, Óskari Hrafni, aðgang að ráðningarsamningi fyrirtækisins við Þórhall Gunnarsson og Sigrúnu Stefánsdóttur. RÚV sendi þá nefndinni erindi þar sem þess var farið á leit að réttaráhrifum úrskurðarins yrði frestað og mun RÚV leita álits dómstóla á úrskurði nefndarinnar.

„Þetta er nákvæmlega það sem við vorum að vara við, að fyrirtækið myndi lokast enn meira," sagði Ögmundur í hádegisviðtalinu á Stöð 2. Hann sagðist almennt vera á þeirri skoðun að öll laun eigi að vera upp á borðinu en þegar komi að stofnanir í eigu ríkisins sé málið enn augljósara. Ögmundur benti á að þegar um væri að ræða fyrirtæki sem fjármagnað væri með skattfé myndist augljós réttur hjá almenningi til að hafa svona hluti uppi á borðum. „Við erum lögþvinguð til að greiða peninga til þessarar stofnunar og þá eigum við ákveðnar kröfur á þessa stofnun," sagði Ögmundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×