Innlent

Viðræðum við Breta ólokið

Samninganefndin fundaði með Bretum í gær og í morgun.
Samninganefndin fundaði með Bretum í gær og í morgun.

Viðræðum sendinefndar breskra stjórnvalda og nefndar íslenskra stjórnvalda er ekki lokið og er gert ráð fyrir að þeim verði haldið áfram á næstunni. Nefndirnar reyna að leiða deiluna um innlán breskra ríkisborgara í íslenskum bönkum til lykta.

,,Dagana 22. og 23. október fóru fram viðræður í Reykjavík milli íslenskra og breskra stjórnvalda um stöðu innstæðueigenda á Icesave reikningum í Bretlandi. Viðræðunum er ekki lokið og er gert ráð fyrir að þeim verði framhaldið á næstunni," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×