Ekki smart tími fyrir launahækkun forstjóra LSH 12. ágúst 2008 11:30 Birna Jónsdóttir.
Formaður Læknafélags Íslands segir það ekki góða tímasetningu að laun forstjóra Landspítalans skuli vera hækkuð um fjórðung á sama tíma og læknar og ljósmæður standi í erfiðum samningaviðræðum. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að laun forstjórans hækka um 25 prósent þegar nýr forstjóri tekur við í haust. Það er samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Við breytinguna verða laun forstjórans ríflega 1,6 milljón króna. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði hækkunina ríflega og þá sagði Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, að ljósmæður þyrftu engu að kvíða, nægir peningar virtust vera til á Landspítlanum. „Maður veltir fyrir sér hvort það sé betra að heyra undir kjararáð," segir Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, um hækkunina. „Mér finnst þetta alls ekki smart tími í ljósi þess að ljósmæður eru að fara í aðgerðir og í ljósi þess smánarlega boðs sem okkur er gert," segir Birna og vísar til kjaradeilu lækna við samninganefnd ríkisins. Birna segir tilboð ríkisins ekki halda í við verðbólguna. „Við erum að taka á okkur kjaraskerðingu." Aðspurð hvort fréttin af launahækkun forstjórans breyti einhverju varðandi kjaraviðræður lækna og ríkisins á Birna ekki von á því. Það sé ekki viðsemjandi lækna, samninganefnd ríkisins, eða ríkissáttasemjari sem hafi hækkað laun forstjóra Landspítalans heldur kjararáð. „Þetta er nú samt sami vinnuveitandi," minnir Birna á.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira