Óskar áhyggjulaus yfir setu Guðlaugs í borgarráði 4. september 2008 13:17 Óskar Bergsson, borgarfulltrúi.
Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segist engar áhyggjur hafa af vangaveltum um hvort varamaður hans í borgarráði, Guðlaugur Sverrisson, megi sitja í ráðinu. Á borgarráðsfundi í morgun var lagt fram álit skrifstofustjóra borgarstjórnar þar sem kemur fram að reglur í varðandi gjaldgengi varamanna í borgarráði séu óljósar. Guðlaugur var á lista framsóknarmanna fyrir síðustu kosningar en hann er hins vegar ekki varamaður Óskars Bergssonar. Málinu hefur verið vísað til forsætisnefndar og segist Óskar þess fullviss að málið verði til lykta leitt þar. „Mér finnst það nú full glannaleg túlkun á umsögn skrifstofustjóra borgarstjórnar að það sé einhver vafi, þegar hann talar um að það sé kannski ekki nógu skýrt," segir Óskar Bergsson í samtali við Vísi. „Við vísuðum málinu til forsætisnefndar og munum taka málið fyrir og klára það þar." Aðspurður hvort ekki þurfi að skerpa á þessum reglum segir Óskar: „Miðað við umræðuna í borgarráði í dag virtist minnihlutinn líta á þetta sem eitt af stóru málunum og þá er bara sjálfsagt að hafa það þannig og útkljá málið sem fyrst." Óskar segir að áður en hann hafi valið Guðlaug sem varamann sinn í borgarráði hafi hann kannað málið hjá lögmönnum borgarinnar. „Það var öllum ljóst að flokkurinn minn var talsvert mikið laskaður í öllum sætum í kringum mig og ég þurfti því að grípa til annara ráða. Þetta var niðurstaðan." Hann bendir á að í umsögn skrifstofustjóra komi fram að lögin kveði hvergi skýrt á um að þetta fyrirkomulag sé í lagi, „en það er heldur ekkert sem segir að þetta megi ekki. Sumir stjórnmálamenn vilja að allt sé bannað sem ekki er leyft og svo eru aðrir sem vilja að allt sé leyft sem ekki er bannað. Þetta er spurning um hvernig menn vilja nálgast hlutina," segir Óskar. Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar, segir í áliti sínu að skýrar þurfi að kveða á um þetta atriði í samþykktum borgarinnar. Hann bendir á í samtali við Vísi að málinu hafi verið vísað til forsætisnefndar borgarinnar til umfjöllunar. Ef hún leggi fram tillögu um breytingar á samþykktum borgarinnar endi tillagan á borði borgarstjórnar sem þurfi að samþykkja hana. Það kemur svo í hlut ráðherra sveitarstjórnarmála, samgönguráðherra, að staðfesta breytingarnar. Aðspurður hvort Óskar hafi ráðfært sig við hann áður en Guðlaugur var skipaður segir Ólafur að hann tjái sig ekki um einstök samtöl við borgarfulltrúa.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Fleiri fréttir Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði Sjá meira