Barnaníðingur vill í Biblíuskóla Breki Logason skrifar 29. janúar 2008 16:36 Ágúst Magnússon barnaníðingur.
Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon mun fá reynslulausn frá Litla-Hrauni á föstudaginn. Ágúst á eitt ár eftir af dómi sínum en reynslulausnina fær hann þó ekki nema með ákveðnum skilyrðum. Ágúst sem er hvað þekktastur fyrir að hafa gengið í gildru hjá fréttaskýringarþættinum Kompáss hefur afplánað dóm á Litla-Hrauni síðan 2004. Þegar hann gekk í gildru Kompáss afplánaði hann á áfangaheimilinu Vernd og hafði aðgang að tölvu með nettengingu. Í kjölfar þess máls tók Vernd þá ákvörðun að vista ekki kynferðisglæpamenn sem brotið hafa gegn börnum en Ágúst var árið 2004 dæmdur fyrir að níðast á sex drengjum. Ágúst starfaði mikið fyrir KFUM á árum áður og er þar af leiðandi kallaður Gústi guðsmaður af samföngum sínum á Litla-Hrauni. Heimildir Vísis þaðan herma að Ágúst hafi viðrað hugmyndir um að fara í Biblíuskóla erlendis að afplánun lokinni. Þó Ágúst þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði sem snúa að tilkynningarskyldu á reynslutíma þá þykir líklegt að hann megi fara úr landi á reynslulausninni. Þar sem Ágúst fær ekki inn á Vernd er óljóst hvar hann mun koma til með að búa þegar hann losnar. Í lögum um reynslulausn nr. 49 frá árinu 2005 eru skilyrði sem Fangelsismálastofnun getur sett í tilfelli sem þessu. Þar kemur m.a fram að aðili sé háður umsjón og eftirliti Fangelsismálastofnunar eða annars aðila sem hún ákveður. Ekki má hann neyta áfengis eða ávana- og fíkniefna. Einnig kemur fram að aðili hlíti fyrirmælum umsjónaraðila um dvalarstað, menntun, vinnu, umgengni við aðra menn og iðkun tómstundarstarfa. Samkvæmt heimildum Vísis þarf Ágúst að uppfylla þessi skilyrði. Hann má meðal annars ekki fara þar sem börn eru að tómstundum. T.d má hann ekki sækja sundlaugar á meðan skólasundi stendur og verður hann að tilkynna sig til stofnunarinnar reglulega. Þessum skilyrðum mun Ágúst vera háður næstu tvö árin.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira